Sveitarstjórnarkosningar 2026

Um vefinn

Er einhver staður þar sem hægt er að fá upplýsingar um kjörstaði, frambjóðendur og kosningakerfið í Akraneskaupstað?

Þessi spurning kom upp í hádeginu einn góðan veðurdag í Rýminu.

Þá var ekkert annað að gera en að rúlla upp ermarnar og smíða vef sem svarar þessari spurningu.

Vefurinn er í eigu Bippa (Kristleifur Skarphéðinn Brandsson). Markmiðið er að bjóða íbúum Akraness upp á aðgengilegar og áreiðanlegar upplýsingar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.

Efni er sótt á ýmsa staði á alnetinu en framboðin hafa góðfúslega látið mig hafa myndir til birtingar

Engin ábyrgð er tekin á upplýsingum sem gætu verið úreltar eða rangar. Ég mun reyna að uppfæra vefinn eins og ég get en ég er bara einn maður og þetta er aukaverkefni.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, athugasemdir eða vilt koma með ábendingar um vefinn, endilega hafðu samband við mig í gegnum netfangið bippi@bippi.is.